Furðuheimur Bibbu

miðvikudagur, janúar 11

Jæja - það er tími til komin að hrista aðeins upp í þessari heimasíðu - komin með leið á henni. Þess vegna er ég búin að opna NÝJA. Linkurinn er hér fyrir neðan, endilega kíkið :) en þið verðið að muna að hún er en þá í vinnslu :) og muna að skrifa í gestabókina.

##Bibba Rokk##

föstudagur, desember 16

Ég er farin i jólafrí

Sjáumst 15.janúar

ath. Muna að taka 21.janúar frá :)

mánudagur, desember 12

Jæja - þið sem ég á eftir að svara, hér koma svörin - nennti ekki að setja þetta í Comment :)

Hjaltey:

1. Litli brjálaði söngfuglinn minn :) hvað segiru um að hafa íslenskt þema í jólaboðinu?
2. Lag....allur íslenski diskurinn þinn, m.a. Gaggó West
3. Þú minnir mig á bjór
4. Ísafjörður, djöfull sváfum við vel í þeirri ferð :) en Vík var líka meiriháttar
5. Söngfugl
6. Hvernig ferðu að því að hlægja svona mikið?

Matthildur:

1. gerviaugnhár, lögfræði, humar, gott vín, Las Vegas, Sporthúsið, Skvass... allt skemmtileg orð sem minna mig á þig
2. Ætli ég myndi ekki segja Flottur Jakki eins og er :) og myndin er Legally blonde
3. Þú ert sko fínasti kokteill
4. Minnir að við höfum leikið okkur í strumpahúsinu hérna í denn, það var fjör - en á svo margar ljósar minningar að þær gætu fyllt þykka bók.
5. Má ég segja fíll? Því hann stampar fótunum jafn fast niður og þú? Annars er það Tiger, fyrir utan stampið
6. Eigum við að elda humar á föstudaginn?

Berglind:
1. Þú ert ein af þeim fáu sem ég þekki sem virkilega standa við allt sem þú segir, og þú ert með svo mikinn sjálfsaga að ég gæfi allt fyrir brot af honum.
2. Allt með Queen - hressir, bætir og kætir
3. Þú ert kaffi - hlý og bragðsterk persóna sem vekur mann til lífsins
4. Humm....sko, kynntist þér í skólanum en veit ekki hvort það flokkast undir ljósa minningu? En allir B-hittingarnir eru æði :)
5. Hund - þú ert svo trygg og hlý
6. Hvaðan færðu þennan sjálfsaga? og af hverju keyptum við árskort í Bootcamp?

Elín Margrét:
1. hehehehe..... fyrsta sem mér datt í hug var LJÓSASTRAUR, enda átti hann stóran þátt í ansi frægu djammi HR-inga fyrsta árið. Annars öguð, sæt og góð stelpa sem er búin að koma sér vel fyrir í lífinu.
2. Dalalíf....veit ekki af hverju
3. Bollan mín fræga :)
4. Ljósastauradjammið fræga :) og á sama tíma lenti Harpa í góðum slag í sjoppunni og ég og Gunnsa staupuðum heilan helling.
5. Kisu
6. Hvenær kemur barnið?

Fanný:
1. Snillingur á allan hátt, skór skór skór og GÓÐUR MATUR. Þetta hugsa ég fyrst um þegar ég hugsa um þig
2. Naked chef
3. Sósuna þína góðu sem er með kjúllanum svo oft
4. Jólaboðið heima hjá þér 2004 - snilld
5. Tignarlegan páfugl
6. hvaðan færðu alla þessa orku?

Sævar:
1. Liverpool, 24, frábær, sannur vinur, djammfélagi - ég sakna þín
2. Auðvelt maður - Sameinumst hjálpum þeim :)
3. Pepsi Max
4. Jólaboðið 2004 - og síðan öll þúsund djömmin á Strætinu og 24 maraþonið, verðum að redda okkur 4 seríunni - ertu búin að sjá hana?
5. Ljón, konungur Strætisins
6. HVENÆR KEMURU HEIM.

föstudagur, desember 9

Datt inn á bloggið hennar Hjaltey og sit uppi með þetta, gjörið svo vel fólk :)

Commentaðu nafninu þínu og..

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
7. Ef þú lest þetta verður þú að setja þetta á bloggið þitt!

Thank you very nice.

fimmtudagur, desember 8

Freya
You scored 42 Wisdom, 80 Sexuality, 36 Strength, and 57 Goodliness!
The goddess of magic, love, and sex, you are very wise and know how to get what you want. Half of all of the battle dead belong to you, as does the exquisite necklace the "Brisingamen." You are still a favorite with many today, especially strong women.



My test tracked 4 variables How you compared to other people your age and gender:
free online datingfree online dating
You scored higher than 11% on Wisdom
free online datingfree online dating
You scored higher than 94% on Sexuality
free online datingfree online dating
You scored higher than 29% on Strength
free online datingfree online dating
You scored higher than 44% on Goodliness
Link: The Which Norse Deity Are You Test written by researcher on Ok Cupid, home of the 32-Type Dating Test

sunnudagur, desember 4

Mig langar að biðja aðilana sem komu í heimsókn til mín klukkan 6 í nótt afsökunar á því að hafa ekki verið heima.

Vinsamlegast hafið samband við mig þar sem mig langar endilega til að hitta ykkur við fyrsta tækifæri, ætla ekki að missa af ykkur einu sinni enn.

Kær kveðja,
Bryndís

föstudagur, desember 2

Í dag fyrir 10 árum síðan spilaði ég fyrsta formlega meistaraflokks leikinn minn

Fyrsti leikurinn minn var á móti Val í Valsheimilinu og unnum við (Grindavík auðvita) 58-41 og var Penny Peppas, fyrsti almennilegi kvennakaninn á Íslandi með 24 stig í leiknum.

Ég fékk að spila síðustu mínútuna en komst því miður ekki á blað.

Þið getið séð leikinn hér: http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/1996/00000221/02210805.htm

(reyndar var ég á bekknum 25.nóv á móti ÍR en spilaði ekki, svo ég tel hann ekki með)